Fréttir

Hraunið rennur í átt að Krossá

Hraunið rennur í átt að Krossá

Fá hraun og ösku á móti sér

Fá hraun og ösku á móti sér

Lenda í reyk og gufumekki

Lenda í reyk og gufumekki

Líkur á að hraunið stífli Krossá

Líkur á að hraunið stífli Krossá

Fisflugvél hrapaði nærri eldgosinu

Fisflugvél hrapaði nærri eldgosinu

Flugóhapp á gossvæðinu

Flugóhapp á gossvæðinu

Íslenskur fréttaljósmyndari slær í gegn á MSNBC

Íslenskur fréttaljósmyndari slær í gegn á MSNBC

Björgunarsveitamenn hræðast Mýrdalsjökul

Björgunarsveitamenn hræðast Mýrdalsjökul

400 fóru fótgangandi að gosinu í morgun

400 fóru fótgangandi að gosinu í morgun

Útsýnisferð á Þórólfsfell-eldur í ljósaskiptum

Ferðafélag Íslands efnir til útsýnisferðar á Þórólfsfell í Fljótshlíð á morgun sunnudag. Brottför er úr Mörkinni 6 með rútum kl. kl.16.00. Þórólfsfell er innst í Fljótshlíð og þaðan er bein sjónlína til gosstöðvanna. Stefnt er að því að fylgjast með umbrotunum í ljósaskiptunum en allir sem séð hafa segja þá sjón sérstaklega tilkomumikla. Gengið verður á Þórólfsfellið sem er hæg ganga og mun taka um klukkustund. Nauðsynlegt er að vera á góðum skóm, með göngustafi og vel klæddur því norðanáttin er köld. Heitt á brúsa og sætmeti í nesti er auðvitað meðferðis og góður sjónauki gæti komið sér vel. Verð í ferðina er 5000 krónur en ókeypis fyrir börn og unglinga yngri en 16 ára. Yfirleiðsögumaður ferðarinnar er Leifur Þorsteinsson, þrautreyndur fararstjóri FÍ til margra ára. Honum til aðstoðar á göngu á fjallið verða eins margir fararstjórar og þarf. Búast má við að leiðangurinn snúi ekki til Reykjavíkur aftur fyrr en seint um kvöldið.