40 mömmur, 40 börn, 2 pabbar og 1 hundur
Barnavagnagöngur FÍ sem standa yfir þessa vikuna njóta mikilla vinsælda.
Í dag mættu 40 mömmur með kerrur og barnavagna og þá 40 börn, 2 pabbar og 1 hundur. Gengið var í góða klukkustund í sól og blíðu frá Gerðasafni í Kópavogi. Dagskrá barnavagnaviku heldur áfram út vikuna og má finna dagskránna á heimasíðu FÍ www.fi.is