Það getur reynst flókið að finna jólagjafir handa sínum nánustu. Um leið getur þetta reynst þrautin þyngri fyrir stjórnendur fyrirtækja. Kannski er besta gjöfin góð heilsa, útivera og ánægjulegur félagsskapur í náttúru landsins.
Ekkert dýrmætara en heilsan
Það er löngu sannað að það eykur bæði líkamlega og andlega heilsu fólks að bregða sér út í náttúruna fyrir utan að það skapar minningar sem lifa oft lengur en annað. Það skemmir heldur ekki fyrir að gjöf á hreyfingu í náttúrinni er líka mjög væn fyrir umhverfið því hún skilur eftir sig minna kolefnisspor en flest það sem hægt er að kaupa í búðum.
Gjafabréf Ferðafélags Íslands
Við bendum því bæði einstaklingum og fyrirtækjum á góða gjöf sem gjafabréf FÍ er en það má nota bæði í ferðir á vegum FÍ og í fjalla- og hreyfiverkefni sem félagið býður upp á og hefja göngu sína á nýju ári.
Einnig er tilvalið að gefa félagsaðild sem kostar 7.900, skálagistingu í skálum eða árbækur, sem til eru í ýmsum gjafapökkum eftir landsvæðum.
Fyrir smærri pantanir má panta gjafabréfin á vefsíðu FÍ en fyrir stærri pantanir má koma við hjá okkur í Mörkinni 6 eða senda okkur póst á fi@fi.is
Ef einhverjar spurningar vakna þá ekki hika við að vera í sambandi við okkur.