Ferðafélag Íslands hefur á undanförnum árum sett upp upplýsingaskilti og vegvísa á fjölförnum vinsælum gönguleiðum. Upplýsingaskilti hafa meðal annars verið sett upp við skála FÍ á Laugaveginum og Fimmvörðuhálsi, sem og við upphafsstaði göngu á Esjunni, Vífilsfelli, Öræfajökli og á jökulshálsi Snæfellsjökuls. Vegvísar hafa verið settir upp á Laugavegi, Fimmvörðuhálsi, Kjalvegi hinum forna, alls yfir 40 vegvísar á þessum gönguleiðum.
Með þessu er Ferðafélagið að greiða götu útivistarfólks og fjallafara og auka öryggi þeirra.
Á skiltinum koma fram upplýsingar um búnað ofl. sem þarf til göngunnar á viðkomandi leið. Eins er árstíðarhringur sem sýnir mismunandi erfiðleika- og hættustig eftir því á hvaða árstíma er ferðast og sumar leiðir lokaðar yfir vetrartímann. Um leið hefur félagið sett upp stikur og vegvísa á þessum leiðum.
Skiltin eru hönnuð af Árna Tryggvasyni.