Ferðaáætlun FÍ 2021 birtist hér á heimasíðunni í dag fimmtudaginn 10 desember og hefjast þá bókanir um leið.
Ferðaáætlunin 2021 er óvenju glæsileg og hátt í tvöhundruð ferðir í áætluninni, allt frá gönguleiðum í byggð yfir á hæstu tinda. Sumarleyfisferðir, helgarferðir, dagsferðir, skíðaferðir, fjalla- og hreyfiverkefni sem og Ferðafélag barnanna og FÍ Ung og deildaferðir eru í áætluninni. Að venju eru bæði sígildar ferðir sem og nýjar ferðir og allir eiga að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Hér má skoða ferðaáætlunina á flettiforriti