FÍ og Dalakofinn taka höndum saman

Ólöf Kristín Sívertsen forseti FÍ og Gústav Stolzenwald handsala samkomulagið
Ólöf Kristín Sívertsen forseti FÍ og Gústav Stolzenwald handsala samkomulagið

Ferðafélag Íslands og Dalakofinn hafa tekið höndum saman og verða bókanir í Dalakofann fyrir árið 2025 í gegnum skrifstofu FÍ. Um leið er unnið að nánara samstarfi þar sem FÍ mun koma að uppbyggingu á aðstöðu í Dalakofanum. Ólöf Krístín Sívertsen forseti FÍ er mjög ánægð með samstarfið. ,, Við sjáum mikil tækifæri í ferðum og kynningu inn á þetta stórbrotna svæði og höfum verið að kynna það, meðal annars í nýlegum árbókum félagsins og eins með kynningarferðum sem hafa notið mikilla vinsælda. Það er búið að vinna virkilega mikið og gott starf í uppbyggingu skálans og ánægjulegt að geta lagt þeirri vinnu lið.

Bókanir í Dalakofann fara nú fram í gegnum skrifstofu FÍ, s. 5682533 eða með tölvupósti á fi@fi.is

Á myndinni eru Ólöf Kristín Sívertsen forseti FÍ og Gústav Stolzenwald fyrir hönd eigenda Dalakofans, að handsala samkomulagið.