FÍ óskar eftir skálavörðum

Ferðafélag Íslands óskar eftir skálavörðum til starfa í skálum félagsins við Laugaveginn sumarið 2025.

Timabilið sem um ræðir er frá miðjum júní fram í miðjan september. Við leitum að fólki sem getur verið lengri eða skemmri tíma. Starfið felst í móttöku gesta, upplýsingagjöf og samskiptum við ferðaþjónustuaðila, daglegum þrifum og umhirðu skála, tjaldsvæða og annara eigna félagsins á svæðinu. Viðkomandi þarf að búa yfir þjónustulund og hafa góða tungumálakunnáttu, vera lausnamiðaður og handlaginn.

Vinsamlegast sendið umsóknir með ferilskrá á sola@fi.is fyrir 24. febrúar 2025