Fjallahlaupahópur Ferðafélags Íslands lætur ekki vetraraðstæður og kulda á sig fá. Skömmu fyrir jól stóð hlaupahópurinn fyrir sólarhrings áheitahlaupi og var í 24 klst hlaupið hring eftir hring í kringum Reynisvatn til styrktar sumarbúðum lamaðra og fatlaðra í Reykjadal. Kjartan Long, umsjónarmaður FÍ Laugavegshlaups var mjög ánægður með söfnunina enda söfnuðust um 600 þúsund krónur í verkefninu.
mbl.is tók viðtal við Kjartan í þegar áheitahlaupið var að hefjast við Reynisvatn og var þá hörkufrost.
En Kjartan, er ykkur ekki kalt?
„Nei, okkur er svo hlýtt í hjartanu,“
Til að gæta að sóttvörnum hljóp alltaf bara einn hlaupari í einu.
„Við erum 28 í hópnum og þetta er sólarhringshlaup þannig að allir fá svona einn klukkutíma hver. Svo eru á meðal okkar hjón sem hlaupa þá saman.“
Kjartan segir að lítið mál sé að hlaupa þrátt fyrir frostið sem nú ríkir. Í nótt hafi náttúran skartað sínu fegursta fyrir allra hörðustu hlauparana.
„Það var dúnalogn og stjörnubjart hérna í nótt, alveg ótrúlega fallegt. Svo erum við með lítið eldstæði og við kveiktum á kertum þannig að þetta er alveg rosalega kósí hjá okkur.“
Þegar hlaupið hófst höfðu safnast um 100 þúsund krónur.
„Ég vona að þetta verði komið upp í svona 2-300 þúsund í lok dags. Það væri alveg afskaplega flott. Það færi þá í að kaupa húsgögn og annað nytsamlegt fyrir sumarbúðirnar.“