Styrktarganga á Úlfarsfell 23.okt kl 18:00

Bleikur Úlli - 23.okt kl 18:00
 
Ferðafélag Íslands stendur fyrir styrktargöngu á Úlfarsfell 23 október kl. 18. Gangan er til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands.
 
Ferðafélag Íslands styrkir Krabbameinsfélagið um 500 kr fyrir hverja mynd sem tekin er við bleiku slaufuna á toppi Úlfarsfells.
 
Það eina sem þú þarft að gera er að taka mynd við bleiku slaufuna og merkja/tagga myndina @ferdafelagislands á Instagram
(ein mynd á mann)
 
Allir sem merkja/tagga okkur á Instagram eiga möguleika á að vinna sumarleyfisferð fyrir einn hjá félaginu árið 2025.