Ferðafélag Íslands, World Class og Fjallakofinn standa fyrir fjölskyldugöngu á Úlfarsfell þann 18 mai nk. kl. 18.00. Um er að ræða skemmtigöngu þar sem Helgi Björnsson og reiðmenn vindanna spila og syngja og skemmta fólki á sviði á Hákinn, sléttunni neðan við efsta hluta fjallsins.
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson verður heiðursgestur í göngunni.
Gangan hefst kl. 18 og verður gengið frá þremur upphafsstöðum á fjallið; frá bílastæði við Vesturlandsveg við aðstöðu skógræktarinnar, frá bílastæðum við upphafsstað göngu í Úlfarsárdal og frá bílastæði á Skarhólabraut, Mosfellsbæjarmegin. Göngustjórar FÍ leiða för frá hverjum upphafsstað.
Fleiri þúsund manns hafa tekið þátt í Úlfarsfellshátíðum Ferðafélags Íslands sem er frábært tækifæri til að eiga góðu fjölskyldustund úti í náttúrunni og syngja sumarið í gang.
Þátttakendur eru hvattir til að mæta vel búnir, í góðum gönguskóm, göngufatnaði og hlífðarfatnaði með bakpoka, með heitt á brúsa og nestisbita. Gera má ráð fyrir örlitlum vindi og hugsanlega skúragangi, en fátt er meira hressandi en góð ganga í ferskum andblæ og votviðri.
Þátttaka er ókeypis, verið velkomin.