Fréttir

Hraunið myndar skeifu um skjöldinn

Hraunið myndar skeifu um skjöldinn

Hraunið um einn ferkílómetri

Hraunið um einn ferkílómetri

Skrifstofa FÍ opin um páskana

Skrifstofa Ferðafélags Íslands í Mörkinni 6 verður opin frá kl. 08.00 til 10.00 alla morgna yfir páskana. Á þeim tíma verður hægt að bóka pláss í gosskoðunarferðir og greiða fargjöld. Skoðunarferðir fara úr Mörkinni 6 kl. 09.00 alla páskadagana.

Ferðaheilræði fyrir helgina

Ferðaheilræði fyrir helgina

800°C hiti í hrauninu

800°C hiti í hrauninu

Mikil gashætta við hraunið

Mikil gashætta við hraunið

Hraunið fossar niður í Hrunagil

Hraunið fossar niður í Hrunagil

Dagsferðir FÍ í Þórsmörk um páskana / gosskoðunarferðir

Ferðafélag Íslands býður upp á dagsferðir í Þórsmörk alla páskana, rútuferðir með fararstjórum. Lagt er af stað frá Mörkinni 6 kl. 9 alla daga, skírdag, föstudaginn langa, laugardag, páskadag og annan í páskum.  Þegar er fullbókað í ferð á skírdag og hratt bókast í ferðir aðra daga. Fyrstir koma, fyrstir fá. Ekið er í Skagfjörðsskála í Langadal í Þórsmörk.  Boðið er upp á gönguferðir með leiðsögn bæði á Valahnúk og upp á Morinsheiði að gosstöðvunum.  Gönguferð á Valahnúk tekur innan við klukkustund. Þaðan er gott útsýni yfir Þórsmörk og bein sjónlína að gosstöðvunumum 6 km. Gönguferð um Morinsheiði, upp Bröttufönn að gosstöðvunum tekur um 6 klst. og er um allbratt land á köflum að fara. Vegalengdin er 10 km. fram og til baka og hækkun nemur 800-900 metrum. Nauðsynlegt er að vera vel búinn í ferðinni, með góðan hlífðarfatnað, góða gönguskó og nesti. Frost getur náð 15-18 stigum efst á fjallinu. Brottför úr Þórsmörk er kl. 10 um kvöldið svo fólk geti séð eldgosið í myrkri og því nauðsynlegt að hafa nægt nesti til heils dags. Verð í ferðina er kr. 10.000 / 12.000.  Frítt fyrir börn og unglinga yngri en 16 ára. Skráning og greiðsla á skrifstofu FÍ.

Páskahátíð í Esjuhlíðum

Samstarf Esjustofu og Ferðafélags Íslands 2. apríl föstudagurinn langi kl:14:00 Hátíðarmessa við Esjustofu. Gunnar Kristjánsson sóknarprestur í Brautarholtskirkju messar. Eftir messu verður gengið að Steini við Þverfellshorn undir forustu Þórðar Marelssonar 3. apríl laugardagur kl:11:00 Páskaeggjaleit í Esjuhlíðum, Heyrst hefur að nokkur egg séu af stærstu gerð!  Ganga undir forustu Þórðar Marelssonar, í átt að Gunnlaugsskarði, og jafnvel upp í skarð, jafnvel alla leið, fer eftir veðri og vindum. 4. apríl sunnudagur páskadagur kl:11:00 Gengið upp að Steini undir forystu Þórðar Marelssonar, létt morgunganga. Útitónleikar við Esjustofu, gítarleikur og söngur fjallamannsins fríska. 5. apríl mánudagur annar í páskum Óvissuferð í Esjunni kl. 11:00, mæting við Esjustofu, undir stjórn Þórðar Marelssonar Daglega verður dregið út að borða fyrir 2. í  Esjustofu Vertu með í góðri Esjugöngu

Litlar breytingar á skjálftavirkni

Litlar breytingar á skjálftavirkni