120 þátttakendur í barnavagnagöngu FÍ á föstudag
17.05.2009
Lokagangan í barnavagnaviku FÍ var á föstudag sl. Þá mættu 120 manns í góðu veðri í laugardalnum og rúmlega 50 barnavagnar og varð til hin myndarlegasta halarófa af barnavögnum. Auður Kjartansdóttir fararstjóri segir að boðið verði upp á barnavagnagöngur í allt sumar einu sinni í viku og verði þær auglýstar nánar á næstunni á heimasíðu FÍ. Sjá myndir úr gönguferðinni á myndabanka FÍ.