Örgöngur í Grafarholti
22.04.2009
Miðvikudagana 22. apríl, 29. apríl, 6.maí,13. maí og 20.maí verða farnar gönguferðir um nágrenni Grafarholts. Þetta verða stuttar ferðir sem taka eina og hálfa til tvær klukkustundir. Í áætlun Ferðafélagsins kallast þær örgöngur. Í fyrstu göngunni verður gengið frá hitaveitugeymunum á Holtsskyggni - eftir stíg yfir golfvöllinn - upp á Hádegisholt - um Lyngdalsklauf - um Skálina - niður brekkuna með Nesjavallaleiðslunni. Þátttaka er ókeypis, allir velkomnir.