Hátíðin Úlfarsfell 1000, sem Ferðafélag Íslands stóð fyrir í gær, heppnaðist vel. Hartnær 1000 manns lagði leið sína á fjallið þar sem tónlistarfólk hélt uppi miklu fjöri.
Nokkur sæti laus í sumarleyfisferð Norðurslóðar við Öxarförð. Gengið frá fjöru til fjalla, um núpa, gil og gljúfur. Gist er á farfuglaheimili á Kópaskeri í fjórar nætur. Ekki er gert ráð fyrir sameiginlegum mat fyrsta kvöldið en góð eldunaraðstaða er á farfuglaheimilinu.
Ferðafélag Íslands lagðist á árar með heimamönnum til að stofna Ferðafélag Grænlands og efla þannig enn frekar útivist og hreyfingu. Grænlenska ferðafélagið leit dagsins ljós þann 9. maí þegar sendinefnd frá Íslandi á vegum Ferðafélags Íslands heimsótti Nuuk og veitti ráðgjöf við stofnun félagsins.
Ferðafélag Grænlands var stofnað 9. maí sl. á fundi í NUUK. Gísli Már Gíslason ritari stjórnar FÍ flutti hinu nýstofnaða félagi kveðju frá Ferðafélagi Íslands. Tómas Guðbjartsson stjórnarmaður í FÍ hélt fyrirlestur um hjarta Íslands og fjallaskíðaferðir. Inga Dora Markussen hefur leitt undirbúningsvinnu á Grænlandi ásamt góðum félögum og Reynir Traustason og Stefán Magnússon hreindýrabóndi hafa unnið að stuðningi þessa verkefnis hér heima. Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra er verndari verkefnisins.
Umhverfisstofnun, Vatnajökulsþjóðgarður og Landgræðslan standa fyrir málþingi um ábyrgar fjallahjólreiðar í náttúru Íslands á Hótel Selfossi 22. maí næstkomandi kl. 17:00-19:00.
Árbók FÍ um Mosfellsheiði hefur verið afar vel tekið og þegar hafa yfir 4.500 félagsmenn greitt árgjald félagsins og fjölmargir sótt árbókina á skrifstofu FÍ.
Ferðafélag Íslands þakkar öllum þeim sem sótt hafa bókina á skrifstofu. Frá og með deginum í dag, miðvikudegi 8. maí verður bókin send heim til allra þeirra sem greitt hafa árgjaldið en ekki sótt bókina á skrifstofuna. Gera má ráð fyrir að bókin geti orðið nokkra daga í sendingu.