Ég byrjaði að fara í ferðir með Ferðafélagi barnanna þegar Signý dóttir mín var fjögurra ára. Þá hafði ég sjálf aldrei gengið á fjöll en langaði að hún fengi áhuga á útivist og náttúrunni almennt.
Slæmt ástand er á gönguslóða frá Skógafossi á Skógaheiði að Fosstorfufossi og leggur Umhverfisstofnun til að sá gönguslóði verði lokaður tímabundið eða þar til aðstæður breytast.
Á næstu vikum mun Ferðafélag Íslands bjóða upp á ferðakynningarkvöld þar sem fararstjórar fara yfir skipulag ferða og sýna myndir. Spennandi ferðir verða kynntar í máli og myndum á skýran og skorinorðan hátt. Kynningarnar verða haldnar í risi FÍ, Mörkinni 6, hefjast ávallt kl. 20 og taka aðeins um klukkustund.
„Myndir frá Látrabjargi“ og „Hið smáa í íslenskri náttúru“ eru fyrirsagnir fyrsta myndakvölds ársins sem verður haldið í sal FÍ í Mörkinni 6 miðvikudaginn 20. febrúar kl. 20:00.
„Við byrjuðum að ganga saman fyrir fimm árum síðan með Biggest winner. Þá var kynningarfundur á Bolludaginn fyrir The Biggest Winner - fyrir feita, flotta og frábæra og stór hópur tók þátt.
Ferðafélag Íslands efnir til heilsuátaks í febrúar og mars fyrir þá sem vilja koma sér af stað og byrja að ganga sér til heilsubótar eftir að hafa glímt við kyrrstöðu eða veikindi.
„Við munum sjá Vetrarbrautina okkar og ætlum svo að skoða fyrirbæri í henni og utan hennar. Ef við erum heppin sjáum við norðurljós,“ segir Sævar Helgi Bragason vísindamiðlari við Háskóla Íslands sem leiðir göngu Ferðafélags barnanna og HÍ á vit himinhvolfsins föstudagskvöldið 1. febrúar
Eitt það hættulegasta við ferðalög í fjallendi að vetrarlagi eru snjóflóð. Með skynsamri ferðahegðan og réttu leiðarvali er hægt að lágmarka för ferðalanga um snjóflóðasvæði.