Örfá sæti laus í Fossagönguna um helgina
05.08.2009
Örfá sæti eru laus í hina stórskemmtilegu gönguferð Fossagönguna í Gnúpverjaafrétti um næstu helgi. Tæplega 30 manns eru skráðir í ferðina en hámarksfjöldi er 30. Fararstjórar eru hinar sívinsælu Sigþrúður Jónsdóttir og Björg Eva Erlendsdóttir, báðar heimamenn úr Gnúpverjahreppi. Gengið með Þjórsá að vestan og skoðaðir 3 stórfossar hennar, Kjálkaversfoss, Dynkur og Gljúfurleitarfoss. Að auki er gengið á tignarsmiðina Ófærutanga og Geldingatanga.