Næsta myndakvöld
13.11.2008
Næsta myndakvöld hjá Ferðafélagi Íslands er 19. nóvember kl: 20 í sal Ferðafélagsins Mörkinni 6.Þar fjallar Ingvar Teitsson um Herðubreið en í ár eru 100 ár frá því það var gengið fyrst á fjallið.Einnig flytja Leifur Þorsteinsson og Steinunn Leifsdóttir erindi sem nefnist Dagur íslenskrar tungu - Fjölnismennirnir Tómas Sæmundsson og Jónas Hallgrímsson.
Aðgangseyri 600kr Kaffi og meðlæti innifalið.Allir velkomnir.