Fjölbreytt námskeið hjá FÍ í vetur
01.02.2009
Ferðafélagið býður upp á fjölbreytt námskeið í vetur er tengjast fjallamennsku, útiveru og ferðamennsku og má þar nefna meðal annars: gps, jöklaöryggisnámskeið, vaðnámskeið, fjallamennsku 1, snjóflóðafræðslu og skyndihjálparnámskeiði. Nánar um námskeið undir ferðadagskrá hér á heimasíðunni.