Fréttir

Skálaverðir ráðnir til starfa hjá FÍ

Ferðafélagið hefur nú ráðið skálaverði í alla skála félagsins í sumar. Bæði er um að ræða skálaverði sem hafa verið áður og einnig eru nokkrir nýliðar.  Mikill áhugi er á skálavarðarstarfinu og sóttu fjölmargir um að þessu sinni, enda starfið bæði lifandi og skemmtilegt. Á myndinni er Heiða fyrrverandi skálavörður í Langadal að bjarga bíl úr Krossá.

Páskar í Landmannalaugum og Þórsmörk

Ferðafélagið stendur fyrir gönguferðum í Landmannalaugum og Þórsmörk um páskana.  Skálaverðir verða á báðum stöðum og einnig fararstjórar í dagsferðum. Ef aðstæður leyfa verður farið á gönguskíði.

Þrautarganga föstudaginn langa

Ferðafélag Fljótsdashéraðs stendur fyrir áhugaverðri göngu á föstudaginn langa, þrautargöngu þar sem  gengið yfir Héraðssand, milli fjalla ca. 30 km. Frá Selfjóti að Fögruhlíðarfjöllum.  Nánari upplýsingar og skráning hjá Ferðafélagi Fljótdalshéraðs www.fljotsdalsherad.is/ferdafelag  

Ársskýrsla um starfsemi Ferðafélags Íslands 2006

Ferðafélag Íslands er 80 ára á árinu 2007. Félagið stendur traustum fótum og gegnir mikilvægu hlutverki meðal þjóðarinnar. Kjörsvið félagsins eru ferðalög um landið, einkum óbyggðir, rekstur sæluhúsa og útgáfustarf á ýmsum sviðum og ber þar hæst útgáfu árbókarinnar en hún hefur komið út samfellt frá árinu 1928. Á 80 ára ferli er eðlilegt að sveiflur verði í félagslífi og starfsemi og nú háttar svo til að mikill áhugi er meðal þjóðarinnar á náttúru landsins, gönguferðum, varðveislu menningar og sögu einstakra héraða. Þessi byr blæs nú í segl Ferðafélagsins og því spennandi tímar og verkefni framundan hjá félaginu.  

Ný stjórn FÍ - Sigrún Valbergsdóttir nýr varaforseti FÍ

Á aðalfundi Ferðafélags Íslands í gærkvöldi var kosin ný stjórn félagsins. Úr stjórn félagsins gengu Valgarður Egilsson varaforseti og Leifur Þorsteinsson báðir eftir níu ára setu í stjórninni og Ásgeir Margeirsson gekk úr stjórn vegna anna á nýjum starfsvettvangi. Voru þeim færðar bestu þakkir fyrir framlag sitt til félagsins með störfum sínum.  Nýir stjórnarmenn voru kosnir Páll Ásgeir Ásgeirsson, Magnús Hákonarson og Sigríður Anna Þórðardóttir. Áfram sitja í stjórn Ólafur Örn Haraldsson, Unnur V. Ingófsdóttir, Elísabet Jóna Sólbergsdóttir, Ívar J. Arndal, Valtýr Sigurðsson og Sigrún Valbergsdóttir sem var kosin varaforseti félagsins.

Þrautarganga hjá Ferðafélagi Fljótsdalshéraðs

Þrautarganga á föstudaginn langa!   Ferðafélag Fljótsdalshéraðs býður upp á spennandi göngu á föstudaginn langa 6. apríl 2007. Þrautarganga, gengið yfir Héraðssand, milli fjalla ca. 30 km. Frá Selfjóti að Fögruhlíðarfjöllum. Ferjað yfir ósinn. Krefjandi ganga. Leiðsögumaður: Björn Ingvarsson Farið frá upplýsingamiðstöðinni á Egilsstöðum kl. 8. Verð kr. 7.500.  Lágmark 15 manns. Skráning í síma 863 5813 eða í ferdafelag@egilsstadir.is fyrir 3. apríl n.k.

Aðalfundur Ferðafélagsins

Aðalfundur Ferðafélags Íslands er haldinn í kvöld, miðvikdagskvöld kl. 20 í sal félagsins Mörkinni 6.  Á dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf.   Allir félagsmenn hvattir til að mæta.

Umræða um nýjan Vatnajökulsþjóðgarð

„Á Íslandi eru vissulega margir fallegir staðir sem erfitt er að gera upp á milli en ég leyfi mér þó að segja að Vatnajökull og nágrenni eru eitthvert stórfenglegasta svæði landsins. Þeir sem ekki hafa farið þangað ættu hiklaust að stefna að því að skella sér við tækifæri, “  segir Haraldur Örn Ólafsson fararstjóri hjá FÍ í viðtali við Blaðið í gær.

Páskar í Landmannalaugum og Þórsmörk

Ferðafélagið verður með skálavörslu í Þórsmörk og Landmannalaugum yfir páskana. Boðið verður upp á dagsferðir á svæðunum með fararstjóra. Miðað er við að ferðamenn komi sér á svæðið á eigin vegum. Í Þórsmörk verður möguleiki á að ferja fólk frá Merkurbæjunum ef áhugi er fyrir hendi.

Nám í ferðamálafræði í Hólaskóla

Í ferðamáladeild Hólaskóla er boðið upp á nám til BA-gráðu í ferðamálafræði þar sem áhersla er lögð á afþreyingu, náttúru og menningu. Einnig er hægt að taka eins árs nám og öðlast þá diplómagráðu í ferðamálafræði ásamt landvarðarréttindum og staðarvarðarréttindum. Möguleiki er á að taka diplómaárið í fjarnámi.