Fréttir

Tilboð til félagsmanna FÍ frá Cintamani búðinni

Cintamani búðin Laugavegi 11 býður nú félagsmönnum í FÍ einstakt tilboð.  Frá 2.- 14. apríl fá félagsmenn Ferðafélagsins 20% afslátt af vörunum okkar gegn framvísum félagsskírteinis

Þrautarganga hjá Ferðafélagi Fljótsdalshéraðs

Ferðafélag Fljótsdalshéraðs býður upp á spennandi göngu á föstudaginn langa 6. apríl 2007.

Jeppadeildin í Langadal - Kirkjuferð í Hvalsnes aflýst

Jeppadeild FÍ verður með bækistöðvar í Langadal yfir páskana.  Farið verður í jeppaferðir  á hverjum degi og boðið upp á vaðnámskeið á laugardegi. Auk þess verður ekið um gamlar og nýjar slóðir og meðal annars yfir Markárfljót.  Skálaverðir verða á svæðinu.

Páskar í Landmannalaugum

Ferðafélagið verður með skálavörslu í Landmannalaugum yfir páskana. Panta þarf gistingu í skálann á skrifstofu FÍ.  Ef þátttaka er fyrir hendi verður boðið upp á dagsferðir frá skálanum.  Ferðamenn koma á eigin vegum í Landmannalaugar.

Jeppadeildin í Þórsmörk yfir páskana

Jeppadeild Ferðafélagsins verður með aðsetur í Langadal í Þórsmörk yfir páskana og fer í lengri eða skemmri dagsferðir frá skála FÍ.  Verð fyrir jeppa í ferðir jeppadeildar er krónur 6000 hvort heldur tekið er þátt í öllum ferðum yfir páskana eða færri. 

Ferðafélag Fljótsdalshéraðs auglýsir eftir sjálfboðaliðum í skála

Ferðafélag Fljótsdalshéraðs auglýsir eftir sjálfboðaliðum í skálann í Húsavík.  Sjálfboðaliða vantar vikurnar: 13.-20.júlí, 21.-27. júlí og 24.-31. ágúst. 

Hvannadalshnjúkur - æfing - Esjan 4. apríl

Gengið verður á Esjuna 4. apríl í undirbúningi fyrir göngu FÍ á Hvannadalshnjúk.  Mæting kl. 17.55 við bílastæðið við Mógilsá en gangan hefst kl. 18. Þátttaka er ókeypis allir velkomnir.

Göngugleði - ferðasaga - 25 mars

Mættir voru 17 manns, 10 með skiði og 7 án þeirra.  Þeir skíðalausu héldu í Búrfellsgjá og eru þeir þar með úr sögunni. Skíðafólkið hélt í Bláfjöll að vanda. Stoppað var austan við Eldborgina og skíðin tekin af og haldið af stað. Þá var hörkurok....

Endurbætur í Hvítárnesi

Ferðafélagið mun í sumar ráðast í gagngerar endurbætur á elsta skála félagsins og fyrsta sæluhúsi landsins, skálanum í Hvítárnesi.  Skálinn liggur nú undir skemmdum og meðal annars hafa grjóthleðslur sigið inn sem og tréverk hússins hefur látið á sjá. Skálinn þykir engu að síður hafa yfir sér mikinn sjarma og verður þess sérstaklega gætt við uppbyggingu skálans að varðveita einkenni hans og upprunalegan svip.

Krossá skiptir um farveg

Krossá hefur í gegnum tíðina dansað um aura Þórsmerkur sem og Hvanná og lítið verið hægt við þær systur að eiga.  Krossá hefur þó nú í nokkuð langan tíma skilað sér undir göngubrúnna sem stendur neðan við Langadal.  Nú hefur áin hins vegar breytt sér og rennur mun vestar niður aurana en áður og göngubrúin því hálf munaðarlaus sem stendur og vakir yfir tómum fyrrverandi farvegi árinnar.  Þar með er engin göngubrú nú yfir Krossá og því næsta verkefni FÍ og Útivistar að koma  Krossá aftur í farveg undir brúnna.