Árbók 2007 í vinnslu
13.02.2007
Árbók FÍ 2007 um Austur Húnavatnssýslu er nú í vinnslu og kemur út þegar líður fram á vor. Jón Torfason frá Torfalæk skrifar textann í bókinni.
Árbækur FÍ eru einstæður bókaflokkur um náttúru landsins, sögu og menningu og hafa komið út í óslitinni röð frá 1928. Myndin hér að ofan er af kápu árbókar 2006.