Sunnudaginn 28.01. hittust nokkrir göngugarpar á planinu við Mörkina 6. Það er logn, lágskýjað,en þurrt og milt veður. Lágþokubakki lá yfir Sundunum og annar teygði sig niður úr Heiðmörk yfir Elliðavatn. Sem sagt ró yfir veðrinu.
Ferðir með Ferðafélagi Íslands um slóðir sem eru í brennidepli umræðunnar hverju sinni njóta vaxandi vinsælda. Þar má til dæmis nefna skemmri ferðir í Þjórsárver, að Langasjó, upp með Þjórsá og víðar....
,,Það er ánægjulegt að sífellt fleiri eru að ferðast um landið. Gönguferðir um náttúruna, bæði í byggð og óbyggðum eru aðalsmerki Ferðafélagsins. Gönguferðir eru allt í senn góð heilsurækt, hressandi útivera, skemmtilegur félagsskapur ...
Fjallað er um Austur-Húnavatnssýslu í 80. Árbók Ferðafélags Íslands sem kemur út á vordögum. Ég hef alltaf haft áhuga á umhverfi og sögu þessa héraðs. Eftir að ég flutti þaðan fyrir nær 25 árum hefur áhuginn vaxið að mun og hef í rannsóknum og skrifum einkum fengist við síðustu tvö hundruð árin segir höfundur bókarinnar, Jón Torfason frá Torfalæk í Torfalækjarhreppi.
Ferðasumarið framundan er spennandi. Ég er strax farin að leggja drög að ferðalögum sumarins og heilar fjórar vikur verð ég úti á landi sem fararstjóri, fyrst á Hornströndum í þrjár vikur og síðan í ferð um Tröllaskagann sem er heillandi svæði til hvers konar gönguferða, en fáfarið, segir Sigríður Lóa Jónsdóttir.
Á sumri komanda býður Ferðafélag Íslands upp á tvær útrásarferðir. Í starfi félagsins er löng hefð fyrir utanlandsferðum og í ár ber hátt ævintýraferð á Kilimanjaro, hæsta fjall Afríku, sem er 5.895 metrar á hæð. Nánari upplýsingar á pdf skjali sem fylgir lýsingu ferðarinnar.
Svonefndur Höskuldarskáli, sem Ferðafélag Íslands reisti við Hrafntinnusker árið 1995, var stækkaður síðastliðið haust. Skálinn er í 1027 m hæð og óvegur að honum fyrir aðra en gangandi menn. Velbúnum bílum er þó fær leið þangað síðsumars, en yfir sprunginn jökul þarf að fara, sem oft er varasamur vegna hálku.
Bókin Fótspor á fjöllum sló í gegn: - Óslökkvandi ást á náttúrunni
"Fyrir þann sem hefur áhuga á ferðum og ferðalögum var það ævintýri líkast að fá að tala við þessa ferðagarpa sem miðluðu mér og lesendum bókarinnar af reynslu sinni af útilegum og slarki í marga áratugi, segir Páll Ásgeir Ásgeirsson blaðamaður.
Innan Ferðafélags Íslands er starfandi bíladeild, sem hefur sl. tvö ár staðið sérstaklega fyrir jeppaferðum. Gísli Ólafur Pétursson leiðir starf deildarinnar og hafa verið farnar ánægjulegar jeppaferðir undir hans fararstjórn. Jeppaferðirnar eru yfirleitt kynntar á vefsetri Ferðafélagsins og með tölvupósti, rétt eins og aðrar ferðir og uppákomur í fjölbreyttu starfi félagsins. Það sem jeppadeilin hefur á prjónunum í ár eru skipulagðar ferðir aðra helgi í hverjum mánuði, Þórsmerkurferð og sumarleyfisferð síðast í júlí sem er fyrir bíla af öllum stærðum og gerðum.