Fréttir

Fréttapóstur frá FÍ

Fréttapóstur frá Ferðafélagi Íslands 8. október. Hægt er að skrá sig á póstlista FÍ hér á heimasiðunni og fá þá relgulega fréttir af ferðum, skálum og félagsstarfi FÍ.

Myndakvöld miðvikudagskvöld 10. október

Myndakvöld miðvikudaginn 10. október Fyrsta myndakvöld FÍ að loknu sumri verður nk miðvikudagskvöld kl. 20.00 Þá kynnir Gerður Steinþórsdóttir dagbókina Í náttúrunnar stórbrotna ríki eftir Ingólf Einarsson en Ferðafélagið gaf hana nýlega út.Þar segir frá óbyggðaferð á fjallabílum um Brúaröræfi, eins og í Hvannalindir, Herðubreiðarlindir og Öskju. Sýndar verða ljósmyndir úr ferðinni og stutt kvikmyndarbrot.  Ingólfur ritaði dagbækur frá ferðum sínum í nær tvo áratugi, en ferðin inn á Brúaröræfi er sú eftirminnilegasta að hans sögn. Hann er heiðursfélagi í Hinu íslenska náttúrufræðifélagi. Gerður var yngsti þátttakandinn í óbyggðaferðinni og ritar formála að dagbókinni.Þá kynnir Leifur Þorsteinsson nýkomið fræðslurit FÍ; Gönguleiðir upp úr botni Hvalfjarðar, sýnir myndir frá svæðinu, segir frá gönguleiðum og kynnir á korti. Myndakvöldið hefst kl 20. Aðgangseyrir er að venju kr. 600 og innifalið er kaffi og meðlæti.  Allir velkomnir.

Vinnuferð í Norðurfjörð

Um sl. helgi var vinnuferð í skála FÍ í Norðurfirði á Ströndum. Gengið var frá fyrir veturinn og vatn tekið af, lokað fyrir glugga, flaggstöngin tekin niður og margt fleira.  Stærsta verkið var þó að nýlagt gólf í fjárhúsinu þar sem aðstaða er meðal annars fyrir tjaldgesti og dagsverðarhópa var málað. Jóhanna Gestsdóttir stýrði vinnuferðinni.  Sjá myndir á myndasíðu FÍ hér á heimasíðunni.

Nýtt skálavarðahús í Nýjadal

Sl. föstudag var vinnuferð í Nýjadal þar sem nýtt skálavarðahús var sett niður við skála FÍ á svæðinu. Skálavarðahúsið var flutt úr Landmannalaugum og sett niður ofan við tjaldstæðið í Nýjadal í um 50 m fjarlægð frá stærri skálanum. Alls voru með í för sjö vinnukallar og einn smiður auk kranameistara.  Vinnan gekk afar vel og var lokið um mjaltir.  Veður var hið besta en tók að slydda um það leiti er vinnu var lokið. Sjá myndir af skálavarðahúsinu á myndasíðu FÍ.

Útilíf býður félagsmönnum FÍ á kynningarkvöld

Útilíf býður félagsmönnum í FÍ á sérstakt kynningarkvöld nk miðvikudagskvöld kl. 19.00 þar sem kynntar verða nýjar línur frá Cintamani, North Face og fleirum.  Það er tilvalið fyrir félagsmenn FÍ að gera góð kaup í Útilíf og koma svo á myndakvöld FÍ sem hefst kl 20.00.

Í óbyggðum 1954 - Brúaröræfi og Askja

Á næsta myndakvöldi FÍ 10. októberkynnir Gerður Steinþórsdóttir dagbókina Í náttúrunnar stórbrotna ríki eftir Ingólf Einarsson en Ferðafélagið gaf hana nýlega út.Þar segir frá óbyggðaferð á fjallabílum um Brúaröræfi, eins og í Hvannalindir, Herðubreiðarlindir og Öskju. Sýndar verða ljósmyndir úr ferðinni og stutt kvikmyndarbrot.   Ingólfur ritaði dagbækur frá ferðum sínum í nær tvo áratugi, en ferðin inn á Brúaröræfi er sú eftirminnilegasta að hans sögn. Hann er heiðursfélagi í Hinu íslenska náttúrufræðifélagi. Gerður var yngsti þátttakandinn í óbyggðaferðinni og ritar formála að dagbókinni. Leifur Þorsteinsson sýnir einnig myndir úr botni Hvalfjarðar og kynnir nýtt fræðslurit FÍ - gönguleiðir úr botni Hvalfjarðar.

Félagsvist FÍ 16. október

Félagsvist Ferðafélags Íslands Kæru spilafélagar. Í vetur verður spilað þriðjudagana 16.okt., 20.nóv., 15. jan., 19. feb. og 18.mars.  Næsta félagsvist verður þriðjudaginn 16. október.  Vistin hefst  kl: 19:30.  Spilað verður í Mörkinni 6 – í risinu.  Hámark þátttakenda er 52.  Fyrstir koma – fyrstir fá. Vinsamlega athugið að félagsvistin er ætluð félögum í Ferðafélaginu og gestum þeirra.  Verðlaun verða veitt, kaffi og kökur.  Sérstök verðlaun verða veitt þeim sem flest stig hlýtur samtals á öllum spilakvöldum vetrarins.  Þátttökugjald er 600 kr.  Bannað er að stökkva upp á nef sér, þótt samherja verði á í spilamennskunni.  

Göngugleði 30. september - ferðasaga

Ekið var í þoku og dumbungi austur Nesjavallaveg og staðnæmst við Borgarhóla. Ákveðið var að halda þangað þó nokkuð væri dimmt yfir.  Samkvæmt veðurspá átti að létta til er liði á daginn og gekk það eftir....,

Haustganga Hornstrandafara FÍ

Hin árlega haustganga Hornstrandafara FÍ verður farin laugardaginn 13. október. Allir velkomir. Sjá nánari dagskrá: Myndin er úr einni af Hornstrandaferðum FÍ.

Myndakvöld 10. október

Fyrsta myndakvöld FÍ eftir sumarið verður miðvikudaginn 10. október.  Þá sýna Gerður Steinþórsdóttir og Leifur Þorsteinsson myndir úr fórum sínum.  Gerður sýnir myndir úr ferð sem farin var í Kringilsárrana fyrir rúmum 50 árum og meðal annars stutta kvikmynd úr ferðinni og kynnir ferðadagbók úr ferðinni og Leifur sýnir myndir úr botni Hvalfjarðar og kynnir nýtt fræðslurit FÍ um gönguleiðir á svæðinu. Aðgangseyrir er sem fyrr kr. 600, innifalið kaffi og meðlæti.