Hvítárnes - endurbætur á skálanum
28.09.2007
Nú stendur yfir undirbúningsvinna að endurbótum og lagfæringum á elsta skála FÍ, sæluhúsinu í Hvítárnesi. Skálinn liggur undir skemmdum og verður endurbættur frá grunni en lögð áhersla á að varðveita sérstöðu skálans og er það gert í samráði við húsafriðnunarnefnd.