Verðmætara ósnortið en virkjað
24.06.2016
,Það verður að varðveita víðernin á hálendinu og stofna þar þjóðgarð. Og þetta verður að gerast strax en ekki eftir 5 eða 10 ár." segir Tómas Guðbjartsson, hjarta- og lungnaskurðlæknir og stjórnarmaður í Ferðafélagi Íslands.
Tómasi var boðið að flytja fyrirlestur á svokallaðri TEDx ráðstefnu sem haldin var í Reykjavík í lok maí. TED fyrirlestrarnir eru fyrir löngu búnir að hasla sér völl sem þekkingamótandi viðburðir undir slagorðinu: Ideas Worth Spreading. Leitað er til framúrskarandi einstaklinga til að flytja stutta en áhugaverða fyrirlestra um sín hjartans mál.