Fréttir

Ný göngubók um Barðaströnd

Nýlega kom út vegleg göngubók og kort um Barðastrandarhrepp við norðanverðan Breiðafjörð. Þar er fallegt gönguland með kjarri vöxnum dölum, tignarlegum fjöllum, gulum sandi og eyjum sem lóna úti fyrir.

Nýir vegprestar á Laugaveginum

Ferðafélag Íslands vinnur að því að setja niður nýja vegpresta á Laugaveginum og eru tveir þegar komnir á sinn stað.

Gengið á góða spá: Gildalshnúkur

Á laugardaginn verður genginn skemmtilegur hringur um Hafnarfjall í opnu útivistarverkefni FÍ sem nefnist Gengið á góða spá. Allir eru velkomnir.

Afmælistilboð á peysum og jökkum

​Í tilefni af 90 ára afmæli Ferðafélags Íslands á næsta ári er félagsmönnum FÍ boðið að kaupa vandaða Marmot göngujakka og göngupeysu á sérstöku afmælistilboði.

Fræðslukvöld með snjóflóðaþema

Göngu-, fjallaskíða- og vélsleðafólk er boðið velkomið á ókeypis fræðslukvöld með snjóflóðaþema fimmtudaginn 13. október.

Ný skálavarðahús tekin í notkun

Í sumar hefur verið unnið að byggingu tveggja nýrra húsa fyrir skálaverði Ferðafélags Íslands, annars vegar í Álftavatni og hins vegar í Hrafntinnuskeri.

Prufugöngur Bakskólans

Bakskóli FÍ stendur er með opnar göngur út þessa vikuna fyrir alla til að koma og prufa. Allir eru velkomnir

Sprettfiskar og kuðungakrabbar

Sumum finnst skemmtilegast að tína skeljar og steina, á meðan aðrir vilja veiða sprettfiska og velta við steinum til að skoða marflær. Fjaran er ævintýraheimur fyrir alla. Á dögunum fór Ferðafélag barnanna í fjörurannsóknarleiðangur út í Gróttu.

Göngur fyrir fólk með stoðkerfisvandamál

Bakskóli Ferðafélags Íslands byrjar í næstu viku og stendur til jóla. Um er að ræða göngur, sund, jóga og léttar fjallgöngur fyrir fólk með bakvandamál og ýmis önnur stoðkerfisvandamál svo sem verki í mjöðmum eða liðagigt. Verkefnið hentar líka eldri borgurum.

Opnar göngur Biggest Winner

Göngu- og útivistarverkefnið Biggest Winner byrjar í næstu viku og fyrstu vikuna er öllum velkomið að koma og taka þátt og máta sig við hópinn. Fyrstu tvær göngurnar verða farnar kl. 18 frá Morgunblaðshúsinu, annars vegar næsta þriðjudag 20. september og hins vegar næsta fimmtudag 22. september.