Stútfull ferðaáætlun FÍ - bókanir hefjast 7. janúar
21.12.2012
Glóðvolgri og stútfullri Ferðaáætlun Ferðafélags Íslands fyrir árið 2013 verður dreift til félagsmanna í byrjun janúar og byrjað verður að bóka í allar ferðir félagsins mánudaginn 7. janúar. Hægt er að skoða ferðaáætlunina á heimasíðu FÍ frá deginum í dag en bókanir hefjast síðan 7. janúar.